Yngsta stig grunnskóla
Jarðarboltinn
Haustið 2013 gáfu Stjörnufræðivefurinn og UNAWE verkefnið öllum leik- og grunnskólum á Íslandi Jarðarbolta til að styðja kennslu í stjörnufræði, samfélagsfræði, Á krakkavef Stjörnuskoðunarfélagsins www.geimurinn.is er að finna kennsluefni sem tengist Jarðarboltanum.
Vísindaleikir um stjörnufræði
Á leikskólanum Björtuhlíð hafa verið þróaðir sérstakir vísindaleikir um stjörnufræði sem voru hluti af M.Ed. verkefni Sverris Guðmundssonar (einn af umsjónarmönnum Stjörnufræðivefsins). Þótt vísindaleikirnir séu upphaflega þróaðir á leikskóla þá ættu þeir að nýtast mjög vel í yngstu bekkjum grunnskóla. Helstu viðfangsefnin eru hreyfing sólar og útlit tunglsins á himninum. Verkefnið er ennþá í þróun og mun meira efni bætast inn síðar um stjörnumerkin og reikistjörnurnar.
Kennsluhugmyndir: Sólkerfið
Á þessari vefsíðu eru ýmsar hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með sólkerfið í heild og reikistjörnurnar. Eitt dæmi er að setja upp líkan af reikistjörnunum í svonefndu „sólkerfisrölti“.
Upplýsingar um stjörnuskoðun
Á Stjörnufræðivefnum eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um stjörnuskoðun:
-
Upplýsingar um stjörnuskoðun í kvöld (stjörnukort, norðurljós o.fl.)
-
Vefvarp Stjörnufræðivefsins þar sem meðal annars hafa birst mánaðarlegir þættir um það sem helst er að sjá á himninum á veturna
Ýmsar vefslóðir sem tengjast stjörnufræði og jarðvísindum
Á vefnum Náttúrutorg er að finna ýmsar vefslóðir sem tengjast náttúrufræðikennslu.