Með stór augu á himninum
-
Þessi mynd var tekin með VLT Survey Telescope (VST) og sýnir hún ýmsar gerðir gagnvirkra vetrarbrauta í ungri vetrarbrautaþyrpingu sem kennd er við stjörnumerkið Herkúles. Á hnífskarpri myndinni — sem er ein fergráða að stærð — sjást óvenju mikil smáatriði í mörg hundruð vetrarbrautum. Lýsingartíminn var aðeins þrjár klukkustundir en myndin sýnir glöggt hve vel í stakk búinn VST sjónaukinn og stóra myndavélin OmegaCAM eru til að kanna nágrenni okkar í alheiminum. Myndin hefur verið klippt til og sýnir því ekki heildarsjónsvið VLT. Mynd: ESO/INAF-VST/OmegaCAM. Þakkir: OmegaCen/Astro-WISE/Kapteyn Institute
Stærstu sjónaukar jarðar eru feikiöflugir og geta leikandi þysjað inn að þeim fyrirbærum í alheiminum sem ekki sjást með berum augum eða í litlum sjónaukum. En vilji stjörnufræðingar taka myndir af stórum svæðum á himninum, verða þeir alla jafna að nota litla sjónauka til þess.
Stjörnufræðingar tala oft um stærð svæðisins sem þeir ljósmynda út frá plássinu sem það þekur á himninum. Himinhvolfið er eins og hálfkúla í laginu sem spannar 180 gráður frá austri til vesturs og frá norðri til suðurs. Það þýðir að svæðið sem fyrirbæri nær yfir á himinum mælist í gráðum — rétt eins og þegar þú mælir horn hálfhrings með gráðuboga. Sem dæmi er plássið sem tunglið tekur á himninum um það bil hálf gráða.
Svæðin sem stórir sjónaukar geta séð af himninum eru miklu minni en ein gráða á breidd. Til að lýsa smærri svæðum nota stjörnufræðingar aðra mælieiningu sem kallast bogamínúta. Í einni gráðu eru 60 bogamínútur.
Þessa nýju mynd hér fyrir ofan tók sjónauki sem heitir VST og sýnir hún heila gráðu af himninum. VST sjónaukinn er risavaxinn, heilir 2,6 metrar á breidd! Samt náði hann mynd af mörg hundruð vetrarbrautum á geysistóru svæði á himninum. Galdurinn á bak við þennan eiginleika þessa öfluga sjónauka er myndavélin, en hún er engin venjuleg vasamyndavél heldur 268 megapixlar!
Að geta tekið myndir af stórum svæðum á himninum hjálpar stjörnufræðingar í leitinni að ááður óséðum fyrirbærum í geimnum.
Skemmtileg staðreynd: Þú getur notað hendurnar til að mæla hornstærðir á næturhimninum. Í útréttri hendi þekur litli fingurinn eins gráðu breitt svæði. Það er næstum tvöföld stærð fulls tungl! Kemur það þér á óvart?
Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1214