Ágúst 2024

  • Hvað er á himni í ágúst?
    Hvað er á himni í ágúst?

Í ágúst hefst stjörnuskoðunartímabilið á ný. Júpíter skín skærast á himni en sést best yfir dimmasta tíma næturinnar eftir miðnætti. Um miðjan ágúst eiga Mars og Júpíter fallegt stefnumót og í lok mánaðarins bætist tunglið í hópinn.

HELST Á HIMNI Í ÁGÚST 2024

3. ágúst - Nótt: Júpíter milli horna Nautsins .

11-12. ágúst - Nótt: Loftsteinadrífan Persítar í hámarki. Búast má við því að sjá allnokkur stjörnuhröp yfir dimmasta part næturinnar.

14. ágúst - Nótt: Mars og Júpíter þétt saman á næturhiminum. Nátthrafnar ættu að horfa eftir þeim lágt í austri um kl 02:00 og fram í birtingu.

20. ágúst - Kvöld: Tunglið nálægt Satúrnusi á kvöldhiminum. Líttu eftir tvíeykinu lágt á lofti í suðaustri í kringum miðnætti.

27.-28. ágúst - Nótt: Tunglið, Mars og Júpíter saman á himni (sjá mynd undir). Líttu eftir þeim um og upp úr miðnætti í austri.

Tunglid-jupiter-mars-28agust2024

TUNGLIÐ

Nánari upplýsingar um tunglstöðu hvers dags má finna undir Tunglið í dag.

Tunglið Dagsetning Kvartil Fróðleikur
Nytt-tungl 4. ágúst
kl. 11:13
Nýtt tungl Milli Jarðar og sólar og sést því ekki á himni.
Tunglid-fyrsta-kvartil 12. ágúst
kl. 15:19
Fyrsta kvartil
(vaxandi)
Rís í kringum hádegi og er á suðurhimni við sólsetur. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Fullt-tungl 19. ágúst
kl. 18:26
Fullt tungl Rís við sólsetur, er hæst á himni um miðnætti, sést alla nóttina
Tunglid-thridja-kvartil  26. ágúst kl. 09:26 Þriðja kvartil (minnkandi

Rís í kringum miðnætti og er í suðri við sólarupprás. Sést á morgnana. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.

  • Tungl næst Jörðu: 21. ágúst - 360.197 km
  • Tungl fjærst Jörðu: 9. ágúst - 405.297 km

NORÐURLJÓS

Á icelandatnight.is, eru bestu upplýsingarnar um geimveðrið og norðurljósaútlit auk skýjahuluspár fyrir Ísland.

REIKISTJÖRNUR Á LOFTI

Merkúríus er ekki á lofti.

Venus er ekki á lofti.

Mars er morgunstjarna í Nautinu, nálægt Júpíter um miðjan mánuðinn.

Júpíter er kvöldstjarna í Nautinu, nálægt Mars um miðjan mánuðinn.

Satúrnus er morgunstjarna í Vatnsberanum, í byrjun mánaðarins lágt á lofti eftir miðnætti í suðaustri en í suðri við miðnætti í lok mánaðarins.

Úranus er morgunstjarna í Nautinu.

Neptúnus er morgunstjarna í Fiskunum.

LOFTSTEINADRÍFUR

Í ágúst nær loftsteinadrífan Persítar hámarki. Persítar draga nafn sitt af stjörnumerkinu Perseifi. Þeir ná hámarki 12. ágúst og má þá búast við því að sjá nokkra tugi stjörnuhrapa á klukkustund við bestu aðstæður. Á Íslandi er þó enn rökkur þegar dimmast er um klukkan 01 að nóttu svo einungis björtustu stjörnuhröpin munu sjást.

Drífan er virk frá miðjum júlí og fram í seinni hluta ágúst. Drífuna má rekja til ísagna sem halastjarnan 109P/Swift-Tuttle hefur skilið eftir á ferðalagi sínu um sólina. Þegar stærri ísagnir skella á andrúmsloftinu okkar á ógnarhraða, um 59 km/s, gætu sést vígahnettir. Það er alveg þess virði að líta eftir þeim.

Stjornuskodun-scaledLÆRÐU MEIRA

Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna er leiðarvísir um stjörnuhiminninn yfir Íslandi.

Í bókinni eru kort þar sem merkt eru áhugaverð fyrirbæri að skoða með handsjónaukum eða litlum stjörnusjónaukum.

VANTAR ÞIG STJÖRNUSJÓNAUKA?

VILT ÞÚ KOMAST Í STJÖRNUSKOÐUN?

Á Hótel Rangá er besta aðstaða landsins til stjörnuskoðunar

Í litlu húsi með afrennanlegu þaki eru tveir fyrsta flokks rafdrifnir og tölvustýrðir sjónaukar. Stjörnuskoðunarhúsið er opið öll heiðskír kvöld milli kl. 21 og 22:30. Þangað eru öll velkomin og er aðgangur ókeypis, þótt auðvitað sé skemmtilegast að gera sér glaðan dag og snæða kvöldverð á staðnum. Um eina og hálfa klukkustund tekur að aka frá höfuðborgarsvæðinu á Hótel Rangá.

Ég mæli með að fjölskyldur komi á föstudegi eða laugardegi svo yngsta fólkið sé ekki þreytt í skólanum daginn eftir.

Sævar Helgi Bragason