Október 2024

  • Hvað sést á stjörnuhimninum í október?
    Hvað sést á stjörnuhimninum í október?

Í október skín Júpíter skín á himni en einnig má koma auga á Mars og Satúrnus. Loftsteinadrífan Óríonítar nær hámarki en mestar vonir eru bundnar við að halatjarnan Tsuchinshan verði björt.

Icelandatnight_Folagid__1200-x-630

HELST Á HIMNI Í SEPTEMBER 2024

10. okt: Halastjarnan Tsuchinshan sjáanleg á himni frá og með 10. október, fyrst lagt í vestri eftir sólsetur

14. okt - Kvöld og nótt: Tunglið, vaxandi, við hlið Satúrnusar, hæst á lofti kl. 23:00

19. okt - Kvöld og nótt: Tunglið, minnkandi, við Sjöstirnið í Nautinu.

20. okt - Kvöld og nótt: Tunglið, minnkandi, við Júpíter í Nautinu

20-21. okt - Nótt: Loftsteinadrífan Óríonítar í hámarki. Birta tunglsins dregur aðeins úr fjölda sýnilegra stjörnuhrapa.

24. okt - Nótt og morgunn: Tunglið, minnkandi, nálægt Mars

TUNGLIÐ

Nánari upplýsingar um tunglstöðu hvers dags má finna undir Tunglið í dag.

Tunglið Dagsetning Kvartil Fróðleikur
Nytt-tungl 2. október
kl. 18:49
Nýtt tungl Milli Jarðar og sólar og sést því ekki á himni.
Tunglid-fyrsta-kvartil 10. október
kl. 18:55
Fyrsta kvartil
(vaxandi)
Rís í kringum hádegi og er á suðurhimni við sólsetur. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Fullt-tungl 17. október
kl. 11:26
Fullt tungl Rís við sólsetur, er hæst á himni um miðnætti, sést alla nóttina
Tunglid-thridja-kvartil  24. október
kl. 08:03
Þriðja kvartil (minnkandi

Rís í kringum miðnætti og er í suðri við sólarupprás. Sést á morgnana. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.

  • Tungl fjærst Jörðu: 2. október - 406 515 km
  • Tungl næst Jörðu: 17. október - 357 176 km
  • Tungl fjærst Jörðu: 29. október - 406 161 km

NORÐURLJÓS

Á icelandatnight.is, eru bestu upplýsingarnar um geimveðrið og norðurljósaútlit auk skýjahuluspár fyrir Ísland.

REIKISTJÖRNUR Á LOFTI

Merkúríus er ekki á loft yfir Íslandi.

Venus er ekki á lofti yfir Íslandi

Mars er morgunstjarna í Tvíburunum en færist yfir í Krabbann í lok mánaðar. Að morgni 24. október er falleg samstaða tunglsins og Mars, hátt á lofti í suðri um kl. 07:00.

Júpíter er kvöldstjarna í Nautinu, áberandi skærasta „stjarna“ himins, er á lofti fram í birtingu.

Satúrnus er kvöldstjarna í Vatnsberanum, í suðri um klukkan 22 frá miðjum mánuði. Að kvöldi 14. október  verður falleg samstaða Satúrnusar og tunglsins. Líttu eftir henni í suðaustri um klukkan 21.

Úranus er morgunstjarna í Nautinu.

Neptúnus er morgunstjarna í Fiskunum.

LOFTSTEINADRÍFUR

Í október nær loftsteinadrífan Óríonítar (e. Orionids) hámarki aðfaranótt 21. október. Geislapunktur drífunnar liggur nærri Betelgás í Óríon, rétt fyrir ofan, og má við bestu aðstæður gera ráð fyrir að sjá í kringum tuttugu stjörnuhröp á klukkustund. Aftur á móti er tunglið bjart á sama tíma, nálægt Júpíter á himni, svo líklega sjást helmingi færri stjörnuhröp úr drífunni þessa nótt. Stjörnuhröpin í drífunni eru fremur hraðfleyg.

Stjornuskodun-scaledLÆRÐU MEIRA

Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna er leiðarvísir um stjörnuhiminninn yfir Íslandi.

Í bókinni eru kort þar sem merkt eru áhugaverð fyrirbæri að skoða með handsjónaukum eða litlum stjörnusjónaukum.

Þá er einnig komin út leiðarvísir um himinninn á ensku, Iceland at Night: Your Guide to Northern Lights and Stargazing in Iceland .

VANTAR ÞIG STJÖRNUSJÓNAUKA?

VILT ÞÚ KOMAST Í STJÖRNUSKOÐUN?

Á Hótel Rangá er besta aðstaða landsins til stjörnuskoðunar

Í litlu húsi með afrennanlegu þaki eru tveir fyrsta flokks rafdrifnir og tölvustýrðir sjónaukar. Stjörnuskoðunarhúsið er opið öll heiðskír kvöld milli kl. 21 og 22:30. Þangað eru öll velkomin og er aðgangur ókeypis, þótt auðvitað sé skemmtilegast að gera sér glaðan dag og snæða kvöldverð á staðnum. Um eina og hálfa klukkustund tekur að aka frá höfuðborgarsvæðinu á Hótel Rangá.

Ég mæli með að fjölskyldur komi á föstudegi eða laugardegi svo yngsta fólkið sé ekki þreytt í skólanum daginn eftir.

Sævar Helgi Bragason