Stjörnuhiminninn í nóvember 2017
Tunglið í nóvember 2017
- Fullt tungl: 4. nóvember kl. 05:23
- Síðasta kvartil: 10. nóvember kl. 20:36
- Nýtt tungl: 18. nóvember kl. 11:42
- Fyrsta kvartil: 26. nóvember kl. 17:03
- Tungl í jarðnánd: 6. nóvember – 361.438 km
- Tungl í jarðfirrð: 21. nóvember – 406.131 km
Sjá nánar upplýsingar um tunglstöðu dag hvern .
Helst á himni í nóvember 2017
Bjarta stjarnan á morgunhimninum, rétt fyrir sólarupprás, er Venus.
- 6. NÓTT Tunglið myrkvar Aldebaran í Nautinu
- 11. MORGUN Tunglið nálægt Regúlusi í Ljóninu
- 15. MORGUN Tunglið nálægt Mars í austri
- 17-18. NÓTT Loftsteinadrífan Leonítar í hámarki (mjög veik, innan við 10 stjörnuhröp á klst þegar best lætur)
Sjá einnig Norðurljósaspá
Stjörnukort fyrir nóvember 2017
Prentvænt stjörnukort fyrir nóvember 2017
Lærðu meira!
Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.
Greint er frá því helsta sem sést með berum augum frá Íslandi, allt frá næturregnbogum og norðurljósum til gervitungla og stjörnuhrapa, að himintunglunum ógleymdum.
Sagt er frá tunglinu, sólinni og reikistjörnunum og hvernig best er að skoða þessa nágranna okkar í sólkerfinu. Ítarlega er fjallað um stjörnuhimininn og yfir fimmtíu fyrirbæri sem auðvelt er að finna, ýmist með handsjónauka, litlum stjörnukíki eða kröftugum stjörnusjónauka.
Bókin geymir að auki fjölda glæsilegra mynda og vönduð stjörnukort.
Horfðu til himins – þar leynist fleira en þig grunar!
Heimildir
- Sky & Telescope, nóvemberhefti 2017
- Fred Espenak, astropixels.com.