Messier 26
Lausþyrping í Skildinum
Tegund: | Lausþyrping |
Stjörnulengd: |
18klst 45,2mín |
Stjörnubreidd: |
-09° 24" |
Fjarlægð: |
5.000 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+8,0 |
Stjörnumerki: | Skjöldurinn |
Önnur skráarnöfn: |
NGC 6694 |
Franski stjörnufræðingurinn Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna og skrásetti þann 20. júní árið 1764.
Messier 26 er nokkuð þétt lausþyrping. Hún er um 22 ljósár á breidd og í um 5.000 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Í gegnum 6-8 tommu sjónauka sjást um 25 nokkuð áberandi stjörnur innan um hátt í 70 daufari. Bjartasta stjarnan er af litrófsgerð B8 og sýndarbirtustigið +11,9. Aldur þyrpingarinnar hefur verið áætlaður um 90 milljónir ára.
Á himninum
Messier 26 sést frá Íslandi en kemst aldrei mjög hátt á himininn. Best er að skoða hana að hausti til, í lok ágúst fram í október og jafnvel alveg fram í nóvember, hvort sem er með handsjónauka eða stjörnusjónauka. Í gegnum handsjónauka sést þokumóða en stjörnusjónauki sýnir björtustu stjörnur þyrpingarinnar. Gott er að nota stjörnukort af Skildinum til að finna þyrpinguna.
Tengt efni
Heimildir
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 26. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-26 (sótt: DAGSETNING).