Messier 28
Kúluþyrping í Bogmanninum
Tegund: | Kúluþyrping |
Stjörnulengd: |
18klst 24mín 32,89s |
Stjörnubreidd: |
-24° 52´ 11,4" |
Fjarlægð: |
18.000 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+7,66 |
Stjörnumerki: | Bogmaðurinn |
Önnur skráarnöfn: |
NGC 6626 |
Franski stjörnufræðingurinn Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna og skrásetti 27. júlí árið 1764.
Messier 28 er í um 18.000 til 19.000 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Hún er um 60 ljósár að breidd og sýnist því þéttari og minni en nágranninn Messier 22. Í Messier 28 hafa fundist hátt í tuttugu breytistjörnur af tegund RR hörpustjarna en líka breytistjörnur af gerð W Virginis b og RV tarfsstjarna.
Á himninum
Messier 28 er svo sunnarlega á himinhvolfinu að hún sést varla frá Íslandi en skýtur rétt svo upp kollinum á hausthimninum í lok ágúst og snemma á i september. Fara þarf mun sunnar til að sjá þyrpinguna vel og styðjast við stjörnukort af Bogmanninum til að finna hana.
Þyrpingin er rétt rúmlega eina gráðu austan við stjörnuna Lambda í Bogmanninum (Kaus Borealis) sem hefur sýndarbirtustigið +2,8. Nota þarf nokkuð stóran sjónauka (9,25-12 tommur og stærri) til að greina sundur stjörnur í þyrpingunni.
Tengt efni
Heimildir
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 28. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-28 (sótt: DAGSETNING).