Messier 55

Kúluþyrping í Bogmanninum

  • Messier 55, kúluþyrping, Bogmaðurinn
    Kúluþyrpingin Messier 55 í Bogmanninum. Mynd: NASA/ESA
Helstu upplýsingar
Tegund: Lausþyrping
Stjörnulengd:
19klst 39mín
Stjörnubreidd:
-30° 57"
Fjarlægð:
17.300 ljósár
Sýndarbirtustig:
+7,42
Stjörnumerki: Bogmaðurinn
Önnur skráarnöfn:
NGC 6809

Franski stjörnufræðingurinn Nicolas Louis de Lacaille uppgötvaði þyrpinguna 16. júní árið 1752 á meðan hann var við athuganir í Suður Afríku. Landi hans Charles Messier hafði leitað að henni nánast sleitulaust frá árinu 1764 þegar hann fann hana loks þann 24. júlí árið 1778.

Þyrpingin ber líka skráarheitið NGC 6809 í New General Catalogue skránni sem tekin var saman seint á nítjándu öld.

Messier 55 er fremur stór en gisin kúluþyrping. Hún er um 100 ljósár í þvermál og í um 17.300 ljósára fjarlægð frá jörðinni.

Messier 55 er of sunnarlega á himinhvelfingunni til að sjást frá Íslandi. Til að sjá hana vel þarf að fara allt suður til Miðjarðarhafsins en til að finna hana er nauðsynlegt að styðjast við stjörnukort af Bogmanninum.

Tengt efni

Heimildir

  1. Messier 55, SEDS Messier pages

  2. en.wikipedia.org/wiki/Messier_55

  3. VISTA skoðar stóra kúluþyrpingu

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 55. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-55 (sótt: DAGSETNING).