Messier 56
Kúluþyrping í Hörpunni
Tegund: | Kúluþyrping |
Stjörnulengd: |
19klst 16mín 35,55sek |
Stjörnubreidd: |
+30° 11′ 04,2″ |
Fjarlægð: |
32.900 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+8,3 |
Stjörnumerki: | Harpan |
Önnur skráarnöfn: |
NGC 6779 |
Þyrpinguna uppgötvaði franski stjörnufræðingurinn Charles Messier þann 23. janúar árið 1779 þegar hann leitaði halastjarna. Hann lýsti henni sem „þoku án stjarna“ líkt og flestum kúluþyrpingum. Á tímum Móðuharðindanna tókst William Herschel fyrstur manna að greina sundur stjörnur í þyrpingunni.
Messier 56 er í um 32.900 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Hún er 8,8 bogamínútur á breidd sem samsvarar 85 ljósárum. Þyrpingin fellur í þéttleikaflokk X. Sjónstefnuhraði hennar er 145 km á sekúndu í átt að okkur.
Björtustu stjörnur Messier 56 eru af 13. birtustigi og í litrófsflokki F. Í þyrpingunni eru nokkrar breytistjörnur, til dæmis RV Tarfsstjarna og Sefíti.
Messier 56 er hálfa vegu milli Beta Cygni (Albíreó) og Gamma Lyrae. Sýndarbirtustig hennar er +8,3 svo hún er með daufustu kúluþyrpingum Messierskrárinnar og skartar ekki sama bjarta kjarna og flestar aðrar kúluþyrpingar. Þrátt fyrir það er fremur auðvelt að greina sundur stakar stjörnur í þyrpingunni, jafnvel þótt hún sé fremur fjarlæg.
Tengt efni
-
Kúluþyrping
Heimildir
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 16. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-16 (sótt: DAGSETNING).