Messier 93
Lausþyrping í Skutinum
Tegund: | Lausþyrping |
Stjörnulengd: |
07klst 44,6mín |
Stjörnubreidd: |
-23° 52′ |
Fjarlægð: |
3.600 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+6,0 |
Stjörnumerki: | Skuturinn |
Önnur skráarnöfn: |
NGC 2447 |
Franski stjörnufræðingurinn Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna þann 20. mars árið 1781.
Messier 93 er í um 3.600 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Þyrpingin er um 20 ljósár í þvermál. Hún er álitin um 400 milljón ára gömul. Að minnsta kosti 80 stjörnur tilheyra þyrpingunni en þær björtustu eru bláir risar af gerð B9.
Á himninum
Messier 93 rétt gægist upp yfir sjóndeildarhringinn frá Íslandi. Best er að skoða hana rétt fyrir og í kringum miðnætti snemma í marsmánuði. Nota þarf stjörnukort af Skutinum til að finna hana. Í gegnum stjörnusjónauka við litla stækkun sést að þyrpingin minnir á þríhyrning. Þyrpingin er næstum jafn björt og nágranninn Messier 46 en gisnari.
Tengt efni
Heimildir
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 93. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-93 (sótt: DAGSETNING).