Helix þokan
Gormþokan NGC 7293
Tegund: | Hringþoka |
Stjörnulengd: |
22klst 29mín 38,55sek |
Stjörnubreidd: |
-20° 50′ 13,6″ |
Fjarlægð: |
700 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+7,6 |
Stjörnumerki: | Vatnsberinn |
Önnur skráarnöfn: |
NGC 7293 |
Gormþokan er eitt nálægasta og besta dæmið um hringþoku. Þetta sérkennilega fyrirbæri varð til í andarslitrum stjörnu á borð við sólina. Þegar stjarnan gat ekki lengur viðhaldið ytri lögum sínum tók hún að varpa gasskeljunum út í geiminn, hægt og bítandi. Úr varð hringþoka og í miðju hennar situr stjarna sem er smám saman að þróast í hvíta dverg.
Þokan sjálf er flókin að byggingu. Hún er ryki, jónuðum efnum og sameindagasi sem myndar fallegt en flókið blómlaga form sem skín fyrir tilverknað orkuríks útfjólublás ljóss frá hvíta stjörnunni í miðjunni.
Þótt Gormþokan minni á kleinuhring hafa rannsóknir sýnt að minnsta kosti tvo hringa. Meginhringur Gormþokunnar, sá innri og bjartari, er hér um bil tvö ljósár að þvermáli, næstum helmingur af vegalengdinni milli sólar og næstu stjörnu. Í heild nær þokan þó að minnsta kosti fjögur ljósár út frá hvíta dvergnum.
Gormþokan er álitin í kringum 10 þúsund ára gömul. Þetta mat er byggt á mælingum á útþensluhraða gassins. Bjarti innri hringurinn þenst út á um 100.000 km hraða á klukkustund.
Í gegnum sjónauka
Þótt Gormþokan sé tiltölulega nálæg og stórglæsileg á ljósmyndum getur verið nokkuð snúið að koma auga á hana í gegnum sjónauka því hún dreifist yfir stórt svæði á himninum — um fjórðung af stærð fulls tungls. Hægt er að sjá hana með handsjónauka eða litlum stjörnusjónauka við mjög góðar aðstæður.
Gormþokan sést frá Íslandi, naumlega þó því hún rís aldrei hátt yfir sjóndeildarhringinn.
Tengt efni
- Hringþokur
Myndir
Víðmynd af Gormþokunni
|
||
Gormur í nýjum búningi
|
||
Rykug GormþokaMynd Spitzer geimsjónauka NASA af Gormþokunni. Myndin sýnir þokuna í innrauðu ljósi. Blái liturinn sýnir innrautt ljós með 3,6 míkrómetra bylgjulengd; græni innrautt ljós með 5,8 míkrómetra bylgjulengd og rautt sýnir innrautt ljós með 24 míkrómetra bylgjulengd. Mynd: NASA/JPL-Caltech/K. Su (Univ. of Arizona) |
Heimildir
-
Gormur í nýjum búningi. ESO. Sótt 19.01.12.
-
Into the Eye of the Helix. ESO. Sótt 19.01.12.
-
Comets Kick Up Dust in Helix Nebula. Spitzer Space Telescope. Sótt 19.01.12.
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2012). Helix þokan. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/ngc-skrain/helix-thokan (sótt: DAGSETNING).