Tilkynningar

Sólskoðun á Menningarnótt

Sævar Helgi Bragason 16. ágú. 2011 Tilkynningar

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða gestum og gangandi að skoða sólina í gegnum sérútbúna sjónauka, ef veður leyfir, á Austurvelli á Menningarnótt milli klukkan 13:30 og 16:30. Stjarnan okkar er síbreytileg og með sjónaukunum verða skoðuð sólgos, sólblettir og margt fleira. 

  • Hvar: Austurvöllur

  • Hvenær: 13:30 - 16:30