September 2024

  • Hvað er á himni í september?
    Hvað sést á stjörnuhimninum í september?

Í september er loksins orðið nægilegt myrkur til þess að daufustu stjörnurnar sjáist. Júpíter skín skærast á himni en einnig má koma auga á Mars og Satúrnus. Í september verður örlítill deildarmyrkvi á tungli.

Icelandatnight_Folagid__1200-x-630

HELST Á HIMNI Í SEPTEMBER 2024

7-8. sept - Kvöld og nótt: Satúrnus í gagnstöðu við Jörð. Þá skín reikistjarnan skærast og er á lofti allar myrkurstundir.

9. sept - Morgunn: Merkúríus og Regúlus rísa saman upp á morgunhiminninn í aust-norðaustri. Árrisulir geta komið auga á tvíeykið um kl 05 að morgni.

17. sept - Kvöld: Satúrnus og tunglið í fallegri samstöðu. Í suðri og því hæst á lofti um miðnætti.

18. sept - Nótt: Deildarmyrkvi á tungli.

22. sept - Haustjafndægur á norðurhveli

25. sept - Kvöld og nótt: Falleg samstaða Mars, tunglsins og Júpíters í austri upp úr miðnætti.

TUNGLIÐ

Nánari upplýsingar um tunglstöðu hvers dags má finna undir Tunglið í dag.

Tunglið Dagsetning Kvartil Fróðleikur
Nytt-tungl 3. september
kl. 01:56
Nýtt tungl Milli Jarðar og sólar og sést því ekki á himni.
Tunglid-fyrsta-kvartil 11. september
kl. 06.06
Fyrsta kvartil
(vaxandi)
Rís í kringum hádegi og er á suðurhimni við sólsetur. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Fullt-tungl 18. september
kl. 02:34
Fullt tungl Rís við sólsetur, er hæst á himni um miðnætti, sést alla nóttina
Tunglid-thridja-kvartil  24. september
kl. 18:50
Þriðja kvartil (minnkandi

Rís í kringum miðnætti og er í suðri við sólarupprás. Sést á morgnana. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.

  • Tungl næst Jörðu: 18. september - 357 289 km
  • Tungl fjærst Jörðu: 5. september - 406 211 km

NORÐURLJÓS

Á icelandatnight.is, eru bestu upplýsingarnar um geimveðrið og norðurljósaútlit auk skýjahuluspár fyrir Ísland.

REIKISTJÖRNUR Á LOFTI

Merkúríus er morgunstjarna Ljóninu, mjög lágt á lofti í austri fyrir birtingu. Lækkar á lofti þegar líður á mánuðinn og færist yfir í Meyjuna þegar hún nálgast sólina.

Venus er ekki á lofti.

Mars er morgunstjarna í Nautinu en færist yfir í Tvíburana snemma í mánuðinum og fjarlægist um leið Júpíter. Að morgni 26. september er samstaða tunglsins og Mars.

Júpíter er kvöldstjarna í Nautinu. Hann rís um seint á kvöldin og er á lofti fram í birtingu.

Satúrnus er kvöldstjarna í Vatnsberanum, í byrjun mánaðarins lágt á lofti fyrir miðnætti í suðaustri en í suðri við miðnætti í lok mánaðarins. Að kvöldi 17. september verður falleg samstaða Satúrnusar og tunglsins. Líttu eftir henni í suðri um miðnætti.

Úranus er morgunstjarna í Nautinu.

Neptúnus er morgunstjarna í Fiskunum. Aðfaranótt 18. september verður deildarmyrkvað tungl örskammt frá Neptúnusi og mun sjást í sjónauka með víðu sjónsviði.

LOFTSTEINADRÍFUR

Í september eru engar meiriháttar loftsteinadrífur.

Stjornuskodun-scaledLÆRÐU MEIRA

Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna er leiðarvísir um stjörnuhiminninn yfir Íslandi.

Í bókinni eru kort þar sem merkt eru áhugaverð fyrirbæri að skoða með handsjónaukum eða litlum stjörnusjónaukum.

VANTAR ÞIG STJÖRNUSJÓNAUKA?

VILT ÞÚ KOMAST Í STJÖRNUSKOÐUN?

Á Hótel Rangá er besta aðstaða landsins til stjörnuskoðunar

Í litlu húsi með afrennanlegu þaki eru tveir fyrsta flokks rafdrifnir og tölvustýrðir sjónaukar. Stjörnuskoðunarhúsið er opið öll heiðskír kvöld milli kl. 21 og 22:30. Þangað eru öll velkomin og er aðgangur ókeypis, þótt auðvitað sé skemmtilegast að gera sér glaðan dag og snæða kvöldverð á staðnum. Um eina og hálfa klukkustund tekur að aka frá höfuðborgarsvæðinu á Hótel Rangá.

Ég mæli með að fjölskyldur komi á föstudegi eða laugardegi svo yngsta fólkið sé ekki þreytt í skólanum daginn eftir.

Sævar Helgi Bragason