Deildarmyrkvi á tungli 18. september 2024
Sævar Helgi Bragason
01. sep. 2024
Fréttir
Aðfaranótt 18. september hylur skuggi Jarðar um 8% af norðurhluta tunglsins
Aðfaranótt miðvikudagsins 18. september 2024 verður deildarmyrkvi á tungli sjáanlegur frá Íslandi, ef veður leyfir. Þegar myrkvinn er í hámarki kl. 02:44 að íslenskum tíma hylur skuggi Jarðar aðeins 8,7% af þvermáli tunglsins og tæp 4% af flatarmálinu. Er þá sem örlítinn bút af norðurhluta tunglsins vanti.
Við myrkvann er tunglið í stjörnumerkinu Fiskunum, nokkuð hátt á lofti í suð-suðvestri, skammt frá Satúrnusi. Ekki þarf neinn sérstakan búnað til að fylgjast með myrkvanum, þótt skemmtilegast sé að virða hann fyrir sér í gegnum stjörnusjónauka.
Helstu tímasetningar eru sem hér segir:
- Hálfskuggamyrkvi hefst: 00:40:58
- Deildarmyrkvi hefst: 02:12:42
- Deildarmyrkvi í hámarki: 02:44:14
- Deildarmyrkva lýkur: 03:16:22
- Hálfskuggamyrkva lýkur: 04:47:54
Í heildina stendur deildarmyrkvinn yfir í 1 klst 3m 40s.
Hringmyrkvi á sólu 2. október
Tveimur vikum síðar eða 2. október verður hringmyrkvi á sólu sjáanlegur frá Kyrrahafi og Suður Ameríku.
Nota þarf sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með myrkvanum.
Seinast sást hringmyrkvi frá Íslandi 31. maí 2003 og næst 11. júní 2048.
Deildarmyrkvi á tungli 18. september 2024
Sævar Helgi Bragason 01. sep. 2024 Fréttir