NGC 4565
Þyrilvetrarbraut í Bereníkuhaddi
Tegund: | Þyrilvetrarbraut |
Gerð: | SA(s)b |
Stjörnulengd: |
12klst 39mín 20,8s |
Stjörnubreidd: |
+25° 59′ 16" |
Fjarlægð: |
30 milljón ljósár |
Sjónstefnuhraði: |
1230 ± 1 km/s |
Sýndarbirtustig: |
+10,4 |
Stjörnumerki: | Bereníkuhaddur |
Önnur skráarnöfn: |
Caldwell 38 |
Ensk-þýski stjörnuáhugamaðurinn William Herschel uppgötvaði vetrarbrautina árið 1785 en hún er eitt frægasta dæmið um þyrilvetrarbraut á rönd. NGC 4565 er glæsileg að sjá í gegnum áhugamannasjónauka.
NGC 4565 er um 100.000 ljósár í þvermál. Hún er nokkuð rykug og býr yfir bjartri, gulleitri miðbungu úr gömlum stjörnum. Að öllum líkindum er um bjálkaþyrilþoku að ræða sem líkist þar með vetrarbrautinni okkar.
Tengt efni
Heimildir
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2012). NGC 4565. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/ngc-skrain/ngc-4565 (sótt: DAGSETNING).