Sólkerfið - léttlestrarbók úr nýjum bókaflokki
Sævar Helgi Bragason
06. des. 2021
Fréttir
Sólkerfið er léttlestrarbók fyrir krakka úr nýjum bókaflokki um náttúruna, vísindi og tækni. Bókin hentar öllum þeim sem eru að læra að lesa og auðvitað þeim foreldrum sem vilja lesa eitthvað fróðlegt og skemmtilegt með börnunum sínum.
Í bókinni Sólkerfið eftir Sævar Helga Bragason er haldið af stað í ferðalag um undraheima sólkerfisins.
Lesendur fræðast um það af hverju sólin skín, hvers vegna tunglið breytir um svip og hvaða reikistjarna átti einu sinni að heita Georg. Sagt er frá tungli sem lítur út eins og mislukkuð ostapizza, öðru sem minnir á hamborgara í of litlu brauði og enn öðru sem minnir á Helstirni Svarthöfða í Stjörnustríði.
Bókin er ríkulega myndskreytt skemmtilegum teikningum eftir Elísabetu Rún .
Sólkerfið er tilvalin fyrir forvitna og fróðleiksfúsa krakka sem vilja æfa lesturinn og efla vísindalæsið í leiðinni! Eða, eins og gagnrýndi Lestrarklefans sagði:
Ég fagna þessari bók og bíð spennt eftir komandi bókum í þessum bókaflokki. Sólkerfið hefur allt með sér sem góð léttlestrarbók að mínu mati. Letrið er hæfilega stórt og magn texta á hverri síðu er passlegur. Kaflarnir eru einnig hæfilega langir en samt þannig uppbyggðir að lítið mál er að stöðva lestur í miðjum kafla. Það sem er hinsvegar allra best er að efni hennar er áhugavert fyrir bæði barnið sem les og foreldrið sem hlustar. Þegar maður hittir á slíka bók við heimalesturinn sem iðulega er sinnt í lok dags, jah slík bók gerir lífið ögn auðveldara og á höfundur hrós skilið
Bókin fæst í öllum bókabúðum .
Aðrar bækur eftir Sævar sem eru tilvaldar í jólapakkann:
Sólkerfið - léttlestrarbók úr nýjum bókaflokki
Sævar Helgi Bragason 06. des. 2021 Fréttir